Nota Netvafri
Þú getur farið inn á vefsvæði þegar þú setur inn veffang á URL stikunni.
Ef þú skráir inn leitarorð, finnur það upplýsingarnar um það í gagnagrunni leitarvélarinnar.
  1. Ýttu á HEIMHEIM hnappinn á fjarstýringunni.
  2. Keyra Netvafri forritið.

NetvafriNetvafri

  1. Þú getur uppfært vefsíðuna sem þú ert að skoða.
  2. Þú getur slegið inn vefslóð til að fara á sérstaka vefsíðu eða slegið inn leitarorð beint.
  3. Þú getur séð þá flipa sem eru opnir.
  4. Þú getur þysjað inn og út á meðan þú vafrar um síðuna.
    Blokka auglýsingar : Þú getur blokkað auglýsingar á vefsíðum sem þú ert að skoða.
    Ekki er hægt að sýna þennan hnapp ef Tákn valmyndarTákn valmyndar Stillingar Nota Block Ads eiginleikinn er stilltur á Kveikt.
    Sjónvarpssýn : Skiptu upp skjánum til að sýna sjónvarpsskjáinn. Þú getur skoðað vefsíður á meðan sýna.
    Saga : Þú getur skoðað og eytt sögu vefsíðuheimsókna.
    Bæta við bókarmerki : Þú getur merkt vefsíðuna sem þú ert að skoða sem uppáhalds.
    Bókarmerki : Þú getur skoðað og eytt lista yfir vefsíður sem þú hefur merkt sem uppáhalds.
    Stillingar : Þú getur breytt vafrastillingum.
    Notkunarleiðbeiningar : Að keyra Notkunarleiðbeiningar.
    Hætta í forriti : Slekkur á að appið sé í gangi í bakgrunninum.
  5. Lokar appinu.
  6. Þegar opnaður er nýr flipi sérð þú lista yfir Síður sem mælt er með og Mest heimsóttar síður.
    Ef þú vilt ekki að Síður sem mælt er með verði birtar, stilltu Tákn valmyndarTákn valmyndar Stillingar Sýna vefsíður sem mælt er með eiginleikann á Slökkt.
    Síður sem mælt er með geta verið mismunandi eftir löndum og eru aðeins aðgengilegar í ákveðnum löndum.
Appið Netvafri í sjónvarpinu er sjónvarpsvafri, svo hann gæti virkað öðruvísi en heðfbundinn vafri í tölvu.
Hægt er að komast á síðuna gegnum Netvafri app sjónvarpsins, svo huga þarf að aðgangi barna að skaðlegu efni á netinu.
Þú getur læst Netvafri appinu til að fyrirbyggja aðgang að skaðlegu efni.
Fínstilltu stillingarnar í StillingarStillingar Tákn allra stillingaTákn allra stillinga Almennt Kerfi Öryggi Forritalæsingar.
Ef þú lendir í vandamáli við notkun Netvafri, skoðaðu Bilanagreining í Notkunarleiðbeiningar.
Að breyta Netvafri stillingum
Veldu Tákn valmyndarTákn valmyndar Stillingar efst á Netvafri appinu.
Við ræsingu
Þú getur valið hvaða síða birtist þegar þú kveikir á Netvafri forritinu.
Leitarvélar
Þú getur valið leitarvél til að leita með þegar leitarorð er slegið í vefslóðarreitur.
Stillingar leitarvéla gætu breyst án tilkynninga sem byggist á kringumstæðum framleiðenda.
Sýna vefsíður sem mælt er með
Þú getur stillt hvort birta eigi lista af Síður sem mælt er með á skjá nýs flipa eða ekki.
Ávallt sýna heimilisfangs stiku
Þegar stillt er á Kveikt, mun vefslóðarreitur og valmynd efst alltaf verða birt.
Sjálfvirk villuskýrsla fyrir vafra
Þegar það er stillt á Kveikt, ef bilun (tæknibilun, bilun í spilun miðla, bilun í síðuhleðslu, óeðlileg lokun, seinkun á svari vegna ófullnægjandi minnis osfrv.) verður þegar vafrinn er notaður, verða viðeigandi upplýsingar sendar sjálfkrafa til þróunarteymis vafra í höfuðstöðvum LG Electronics (Kóreu). Upplýsingarnar sem eru sendar verða aðeins notaðar til að bæta frammistöðu vafrans.
Nota Block Ads
Þegar það er stillt á Kveikt, ýtirðu á Tákn valmyndarTákn valmyndar efst í Netvafri, þangað til birtist hnappur til að kveikja á Nota Block Ads eða slökkva á skjánum. Ef kveikt er á Nota Block Ads eiginleikanum hlaðast síður hraðar með því að blokka auglýsingar á vefsíðunni.
Síðusíun
Þú getur skráð vefsíður til að blokka eða leyfa.
Leyfðar síður : Þú getur fínstillt stillingarnar til að opna eingöngu vefsíður sem þú hefur áður skráð.
Lokaðar síður : Þú getur fínstillt stillingarnar til að blokka ákveðin vefsvæði.
Til að nota Síðusíun eiginleikann, ættir þú að skrá lykilorðið á sjónvarpinu.
Sprettiglugga blokkari
Blokkar sprettiglugga sem birtast sjálfkrafa á vefsíðum.
Einka vöfrun
Ef stillt á Kveikt, mun það ekki skilja eftir sig sögu yfir heimsóknir á vefsíðu.
Ekki fylgja eftir
Þú getur beðið vefsíðu um að geyma ekki sögu um þína heimsókn. Aðgerðin gæti verið mismunandi eftir reglum vefsíðunnar.
Aðlögunarstreymi sem notar JavaScript
Streymisveitur sem nota JavaScript leyfa þér að skoða myndskeið í fínstilltri upplausn.
Ef það er stillt á Slökkt, verður upplausn myndbanda spiluð í Netvafri takmörkuð fyrir 720p.
Stillingar fótspora
Það leyfir vefsíðu að geyma og nota gögn fótspora.
Hreinsa vafragögn
Hreinsa fótspor : Eyðir fótsporum. Þegar eytt er, ertu skráð/ur út af flestum síðum.
Hreinsa öll vafragögn : Eyðir allri vafrasögu, þar á meðal fótsporum.