Úrræðaleit fyrir vandamál með afl/fjarstýringu
Ef eitthvert af neðangreindum vandamálum koma upp á meðan varan er í notkun, vinsamlegast athugaðu eftirfarandi: Það gætu verið engin vandamál með vöruna.
- Ég get ekki kveikt á sjónvarpinu.
- Gakktu úr skugga um að Biðstöðuljós í sjónvarpinu sé rautt. Ef Biðstöðuljós er slökkt, skaltu athuga hvort sjónvarpið sé í sambandi, eins og sýnt er hér fyrir neðan.
- Ef þú ert að nota fjöltengi, athugaðu hvort að það virki almennilega. Til að athuga hvort að orkustykki virki almennilega, stingdu orkukapli sjónvarpsins beint í vegginnstungu og fylgstu með starfseminni.
- Reyndu að kveikja á með því að ýta á hnappinn á sjónvarpinu.
- Kveikt er á aflinu en það kviknar seinna á skjánum.
- Þetta er vegna þess að það er ferli sem fjarlægir hljóð til að eyða öllu mögulegu hljóði sem gæti komið þegar verið er að kveikja á. Þetta þýðir ekki að varan sé gölluð.
- Bendill Magic Remote fjarstýringarinnar birtist ekki á skjánum.
- Beindu fjarstýringunni að sjónvarpinu og haltu inni á hnappinn þar til leiðbeiningarnar birtast. Hin áður skráða fjarstýring er afskráð og síðan skráð á ný.
- Skiptu um rafhlöður þegar þú ert beðin(n) um það á sjónvarpskjánum. (Notið alkalí rafhlöður.)
-
Ef að
Almennt Aðgengileiki Hljóðleiðsögn er stillt á Kveikt, mun bendill Magic Remote ekki birtast.
Stilla Hljóðleiðsögn á Slökkt.
(Þjónusta gæti ekki verið tiltæk fyrir sumar tegundir.)
- Ég get ekki kveikt á sjónvarpinu með fjarstýringunni.
- Vinsamlegast gættu þess að orkukapall sjónvarpsins sé rétt tengdur við innstunguna.
- Skiptu um rafhlöður í fjarstýringunni. (Notið alkalí rafhlöður.)
- Athugaðu hvort það er einhver hlutur sem hindrar merkið fyrir framan móttakara sjónvarpsfjarstýringarinnar. Ef eitthvað er fyrir framan móttakarann neðst á sjónvarpinu, t.d. hljóðkerfi, gæti það truflað móttöku á merkjum frá fjarstýringunni.
- Þegar notuð er fjarstýring netlykils og slökkt er á stjórn fjarstýringar netlykils í sjónvarpinu er ekki hægt að kveikja eða slökkva á sjónvarpinu með fjarstýringu netlykils. Hafðu samband við þjónustuaðila netlykilsins.
- Rafmagn fer af skyndilega.
- Athugaðu hvort stillt sé á Slökkva á tímastilli.
- Sjónvarpið mun sjálfkrafa slökkva á sér ef þú ýtir ekki á neina hnappa í 4 tíma, jafnvel eftir að kveikt var á sjónvarpinu á stilltum tíma af Áminning eða Kveikja á tímastilli.
- Það eru einnig líkur á að innri vörn fyrir rafrásarbúnað hafi virkjast vegna þess að innra hitastig vörunnar hafi risið skyndilega eða óhóflega.
- Ef þú notar netlykil er hægt að stilla þannig að það slökknar á sjónvarpinu þegar slökkt er á netlyklinum. Breyttu samstillingunni við sjónvarpið í netlyklinum til að koma í veg fyrir að það slökkni á sjónvarpinu þegar slökkt er á netlyklinum.
- Ég get ekki kveikt á eða notað tækið með fjarstýringunni, jafnvel eftir að búið er að stilla universal fjarstýringu.
- Gakktu úr skugga um að tækið sé í sambandi við rafmagn.
- Skiptu um rafhlöður í fjarstýringunni. (Notið alkalí rafhlöður.)
- Athugaðu hvort það eru einhverjir hlutir sem hindra merkið fyrir framan móttakara fjarstýringar tengda tækisins.