Úrræðaleit fyrir vandamál með nettengingu
Ef eitthvert af neðangreindum vandamálum koma upp á meðan varan er í notkun, vinsamlegast athugaðu eftirfarandi: Það gætu verið engin vandamál með vöruna.
Athugaðu nafn og lykilorð Wi-Fi tækisins til að tengjast áður en þú tengist við þráðlaust net.
Athugaðu nafn og lykilorð Wi-Fi tækisins til að tengjast áður en þú tengist við þráðlaust net.
Þú getur athugað tengingu netkerfis eins og sýnt er hér að neðan.
-
Almennt
Netkerfi
Fasttenging (Ethernet)
-
Almennt
Netkerfi
Wi-Fi tenging
Aðrar netkerfisstillingar
Ítarlegar Wi-Fi stillingar
-
Þegar X birtist næst við sjónvarp -
Athuga sjónvarpið eða AP (Beini).
- Athugaðu stöðu tengingar á sjónvarpinu, AP (Beini) og kapalmótaldi.
- Slökkva á og kveikja á í eftirfarandi röð;
1. Slökktu og kveiktu aftur á kapalmótaldi þínu, og bíddu eftir að tækið endurræsist.
2. Slökktu og kveiktu aftur á víruðum/þráðlausum beini þínum, og bíddu eftir að tækið endurræsist.
3. Slökktu og kveiktu á sjónvarpinu.- Ef þú vilt tengjast LAN tengingu, athugaðu hvort að hægt sé að fá IP-tölu frá þínum beini á réttan hátt. Ef þú ert að setja upp netið handvirkt, athugaðu hvort allar stillingar séu réttar.
- Ef þú vilt setja upp þráðlaust net, athugaðu þá einnig eftirfarandi punkta.
① Stilltu SSID þíns beinis (netheiti) eða þráðlausa rás.
② Stilltu öryggisheiti þíns beinis.
Ef þú getur ekki lokið þessari stillingu skaltu skoða notendahandbók beinisins og leiðbeiningarnar sem veittar eru af netþjónustuaðila þínum. Ef þú getur ekki enn komið á þinni grunnstillingu, ráðfærðu þig við framleiðanda þíns beinis eða netþjónustuaðila þinn.- Ef þú ert að nota stöðuga IP-tölu, skráðu hana beint inn.
-
Þegar X birtist næst við Gátt - Athugið AP (Beinin) eða hafið samband við netþjónustuaðila.
- Taktu kapal beinis/mótalds úr sambandi við rafmagn, bíddu í 10 sekúndur og endurtengdu hann.
- Frumstilla (Endurstilla) AP (Beini) fyrir kapalmótald.
- Athugið vefsvæði AP (Beinir) framleiðanda til að staðfesta að þinn beinir sé með nýjustu útgáfu fastbúnaðs uppsetta.
- Ef þú getur ekki lokið þessari stillingu skaltu skoða notendahandbók beinisins og leiðbeiningarnar sem veittar eru af netþjónustuaðila þínum. Ef þú getur ekki enn komið á þinni grunnstillingu, ráðfærðu þig við framleiðanda þíns beinis eða netþjónustuaðila þinn.
-
Þegar X birtist næst við DNS - Athugið AP (Beinin) eða hafið samband við netþjónustuaðila.
- Taktu kapal beinis/mótalds úr sambandi við rafmagn, bíddu í 10 sekúndur og endurtengdu hann.
- Frumstilla (Endurstilla) AP (Beini) fyrir kapalmótald.
- Athugið hvort að MAC vistfangið á TV/AP (Beini) er skráð hjá þínum netþjónustuaðila. (MAC vistfangið sem sýnt er á rúðu á netstöðuglugganum ætti að vera skráð hjá þínum netþjónustuaðila.)