Tengjast netkerfinu
Ef þú notar stillingarnar fyrir netkerfið, getur þú notað ýmsar þjónustur líkt og efni og forrit á netinu.
Stilla netkerfi með kapli
-
Tengið LAN tengið á sjónvarpinu við beininn með því að nota LAN kapal.
Beinirinn ætti að vera tengdur við netið áður.Ef beinirinn styður DHCP, mun sjónvarpið tengjast sjálfkrafa við netkerfið þegar þú tengir sjónvarpið við netkerfi með LAN kapli. -
Ýttu á
hnappinn á fjarstýringunni.
-
Veljið
Almennt Netkerfi Fasttenging (Ethernet).
Til að sjá smáatriðin, ýttu á Stillingar Netkerfi Fasttenging (Ethernet) í Notkunarleiðbeiningar.
Ef netkerfið er ekki tengt sjálfkrafa
Að stilla þráðlaust netkerfi
- Kveiktu á beininum sem tengdur er við internetið.
-
Ýttu á
hnappinn á fjarstýringunni.
-
Veljið
Almennt Netkerfi Wi-Fi tenging.
- Þegar leit að netkerfum er lokið, kemur upp listi af tiltækum netkerfum sem hægt er að tengjast við.
-
Veldu netkerfi til að tengjast við.
Ef það er lykilorð á LAN beininum, skráðu lykilorðið sem uppsett er á beininum.
Til að sjá smáatriðin, ýttu á Stillingar Netkerfi Wi-Fi tenging í Notkunarleiðbeiningar.
Netkerfisstillingar Viðvaranir
Notið staðlaðan LAN kapal (tengja við Cat7 eða hærra með RJ45 tengil, 10 Base-T, eða 100 Base TX LAN tengi).
Endurstilling beinisins getur valdið vandamálum við nettengingar.
Í þessu tilfelli mun beinirinn virka eðlilega ef þú slekkur á honum og aftengir sjónvarpið og tengir síðan aftur og kveikir á honum.
Framleiðandinn ber ekki ábyrgð á nettengingu eða bilun í virkni vegna vandamála svo sem bilunar í búnaði eða ótengdum línum.
Tengingin við netkerfið gæti ekki virkað almennilega vegna stillinga netkerfa eða netþjónustuveitenda.
DSL þjónusta þarf að nota DSL mótald og kapalþjónusta þarf að nota kapal mótald. Þar sem að það eru takmörk fyrir fjölda nettenginga, gætu stillingar sjónvarpsnetkerfa ekki verið notaðar miðað við samninga við netþjónustuna. (ef samningurinn heimilar ekki fleiri en eitt tæki á línu þá má eingöngu nota þær tölvur sem þegar eru tengdar.)
Þráðlaust netkerfi getur upplifað truflanir frá öðrum tækjum sem nota 2,4 GHz tíðni (þráðlaus sími, Bluetooth tæki, eða örbylgjuofn). Þó að truflanir geti einnig komið fyrir þegar þú notar 5 GHz tíðni, er ólíklegra að slíkt gerist.
Þráðlausa umhverfið getur valdið því að þráðlaus netkerfi virki hægt.
Notkun margra þráðlausra tækja á sama tíma getur hægt á netinu þínu.
Aðgangstækið þarf að styðja við þráðlausar tengingar og þráðlaus tenging þarf að vera virk á tækinu svo það hafi AP (access point) tengingu. Hafðu samband við þjónustuaðila til að athuga þráðlausar tengingar yfir á aðgangspunktinn.
Athugið SSID og öryggisstillingar á AP. Athugið viðeigandi bæklinga fyrir SSID og öryggisstillingar fyrir AP.
Ef netinu er breytt með því að færa sjónvarpið eða skipta um beini verður að setja þráðlausa netið upp aftur.
Núverandi þráðlausar nettengingar verða ekki vistaðar.
Ógildar stillingar á netkerfis tækjum (tengdum með kapli/þráðlausum, tengistöð) getur valdið því að sjónvarpið starfi hægt eða óeðlilega. Settu upp tækið á réttan hátt eins og útlistað er í leiðbeiningum og netkerfi.
Aðferð tengingar gæti verið breytileg miðað við AP framleiðendur.
Til að leysa vandamál tengt þessum eiginleika, athugaðu Bilanagreining kaflann í Notkunarleiðbeiningar.