Horfðu á efni vistað á tölvunni þinni á sjónvarpinu
Þú getur notið myndbanda/tónlistar/ljósmynda sem geymd eru á tölvunni í sjónvarpinu þínu þegar þessi tæki eru tengd við sama netkerfi.
Flettu í gegnum efni á tölvunni þinni til að horfa á í sjónvarpi (Windows 10)
  1. Tengdu sjónvarpið og tölvuna við sama netkerfið.
  2. Hægri smelltu á skrána sem þú vilt spila og veldu „Senda út í tæki“.
  3. Veldu nafn sjónvarpsins sem þú vilt horfa á úr birta listanum og afspilun hefst á því sjónvarpi.
Jafnvel þegar mörg sjónvörp eða tæki eru tengd, gæti valin skrá eingöngu verið spiluð í gegnum eitt tæki. Hraði spilunar gæti verið breytilegur miðað við tengingu netkerfis.
Til að spila á öðrum stýrikerfum eða tækjum skal sjá handbók stýrikerfis/tækis.
Flettu í gegnum og horfðu á efni geymt á tölvunni með því að nota sjónvarpið (Windows 10)
  1. Tengdu sjónvarpið og tölvuna við sama netkerfið.
  2. Opnaðu „Byrja“ valmyndina á tölvunni þinni, leitaðu að „valkostir straumspilunar efnis” og veldu niðurstöðu sem birtist.
  3. Veldu „kveikja á straumspilun efnis“ hnappinn í glugganum sem birtist.
  4. Leyfðu alla „valkosti straumspilunar efnis“.
  5. Veldu „í lagi“ til að vista stillingarnar.
  6. Veldu tengda tölvu í Mælaborð heimilis forritinu á sjónvarpinu og veldu síðan og spilaðu þá skrá sem þú vilt.
Til að spila á öðrum stýrikerfum eða tækjum skal sjá handbók stýrikerfis/tækis.
Atriði sem Efnisdeiling þarf að fylgjast með
Athugaðu kerfisstillingar ef valkostur til efnisdeiliingar virkar ekki eðlilega.
Gæti ekki virkað almennilega á þráðlausu netkerfi. Ráðlagt er að þú tengist netkerfi með kapli.
Gæti ekki virkað almennilega miðað við umhverfi netkerfis.
Ef mörg sjónvörp eru tengd við eitt tæki, gæti efnið ekki spilast almennilega sem fer eftir afkastagetu netþjónsins.
Til að horfa á 1080p myndband í gegnum efnisdeilingareiginleikann er nauðsynlegt að hafa beini sem notar tíðnina 5 GHz. Ef þú notar 2,4 GHz beininn sem er fyrir gæti það hægt á spilun myndbandsins eða það ekki spilast á réttan hátt.
Efnisdeilingar eiginleikinn gæti ekki verið studdur af beini sem styður ekki margvörpun (multi-cast). Fyrir frekari upplýsingar, skoðaðu leiðarvísinn sem kom með beini þínum eða hafðu samband við framleiðandann.
Skýringartexti er eingöngu studdur á sumum tengdum tækjum.
Ef þú hefur bætt við myndatexta á eftir, slökktu á samnýttu möppunni á tölvunni og virkjaðu hana síðan aftur.
DRM skrár í tengdum tækjum munu ekki spilast.
Jafnvel fyrir skráarsnið sem stutt er af sjónvarpinu þá gæti studda skrársniðið verið breytilegt miðað við umhverfi tengdra tækja.
Ef það eru of margar möppur eða skrá í möppu, gæti það ekki virkað almennilega.
Upplýsingarnar á þeirri skrá sem flutt er frá tengdu tæki gætu ekki birst rétt.
Sum streymi gætu ekki spilast í efnisdeilingarham eftir því hver kóðunin er.