Tími & tímastillir
StillingarStillingar Tákn allra stillingaTákn allra stillinga Almennt Kerfi Tími & tímastillir
Þú getur athugað tímann eða aðlagað tengdar stillingar.
Stilla sjálfkrafa
Tími sjónvarpsins er sjálfkrafa stilltur á tíma stafrænna útsendingarupplýsinga sem sendar eru frá útsendingarstöðinni eða á tímann sem sendur er frá netþjóninum.
Tími / Dagsetning / Tímabelti
Þú getur stillt tíma og dagsetningu handvirkt ef sjálfvirka stillingin er röng.
Ef þú stillir tímann handvirkt og með loftnetið tengt, gætu dagskrárupplýsingar o.fl. ekki virkað sem skildi.
Sérsniðið tímabelti
Þegar þú velur Sérsnið í Tímabelti, Sérsniðið tímabelti er valmyndin virk.
Tímastillar
Svefntímastilling
Stillir að sjónvarpið slekkur á sér á ákveðnum tíma.
Ef þú vilt ekki nota Svefntímastilling, veldu Slökkt.
Kveikja á tímastilli
Stilla Kveikja á tímastilli á Kveikt.
Kveikt er á sjónvarpinu og það sýnir valda stöð á stilltum tíma.
  • Tími : Stilltu hvenær kveikja skal á sjónvarpinu.
  • Tímastillir endurtaka : Stilltu dag vikunnar. Stilltu á Enginn til að stilla þennan eiginleika aðeins einu sinni.
  • Inntak : Stilltu utanáliggjandi inntak til að birta þegar kveikt er.
  • Stöð tímastillis : Stilltu stöð til að birta þegar kveikt er. Þennan valkost er aðeins hægt að stilla þegar Inntak er stillt á TV.
  • Hljóðstyrkur : Stilltu hljóðstyrk til að nota þegar kveikt er á tæki.
Slökkva á tímastilli
Stilltu Slökkva á tímastilli á Kveikt.
Slökkt er á sjónvarpinu á stilltum tíma.
  • Tími : Stilltu tímann þegar slökkva skal á sjónvarpinu.
  • Tímastillir endurtaka : Stilltu dag vikunnar. Stilltu á Enginn til að stilla þennan eiginleika aðeins einu sinni.
Slökkva sjálfvirkt eftir 4 klukkustundir
Ef þú ýtir ekki á neinn hnapp í 4 klukkustundir eftir að kveikt hefur verið á sjónvarpinu af eiginleika eins og Kveikja á tímastilli, þá slekkur sjónvarpið á sér sjálfkrafa.
Til að stilla að sjónvarpið slökkvi ekki sjálfkrafa á sér, stilltu Slökkva sjálfvirkt eftir 4 klukkustundir yfir á Slökkt.
Þjónusta gæti ekki verið tiltæk fyrir sumar tegundir.
Til að nota Kveikja á tímastilli/Slökkva á tímastilli, stilltu tímann rétt.