Hugbúnaðaruppfærsla
Stuðningur
Hugbúnaðaruppfærsla
Notar hugbúnaðaruppfærslu til að athuga og sækja nýjustu útgáfuna.
- Sjálfvirk uppfærsla
- Þegar það er stillt á Kveikt eru uppfærslur gerðar sjálfkrafa án sérstakrar staðfestingaraðferðar nema fyrir mikilvægar uppfærslur.
- Athuga með uppfærslur
- Þú getur eingöngu framkvæmt uppfærslu ef uppfærsluskrá útgáfu er til staðar, þegar þú athugar hvort að ný útgáfa er til staðar. Sjónvarpið athugar sjálfkrafa hugbúnaðarútgáfuna en þú getur framkvæmt handvirka athugun, ef nauðsynlegt þykir.
Stillanleg atriði eru misjöfn eftir tegund sjónvarps.
Hægt er að nálgast nýjustu útgáfu í gegnum stafræna útsendingu eða nettengingu.
Að breyta um dagskrá á meðan verið er að niðurhala hugbúnaði í gegnum stafrænt útsendingarmerki mun trufla niðurhalið. Niðurhalið mun halda áfram þegar farið er aftur á upphafsdagskrá.
Ef hugbúnaður er ekki uppfærður, geta sumir eiginleikar ekki virkað almennilega.
Í sumum löndum, Sjálfvirk uppfærsla er ekki sýnt ef þú ert ekki tengdur við internetið.
Tækið þitt mun af og til þurfa að hala niður og setja upp hugbúnaðaruppfærslur til að viðhalda hámarks virkni.
Á meðan hugbúnaður er uppfærður gæti slokknað á skjá tækis þíns, ef engin notendasamskipti hafa átt sér stað innan 4 klukkustunda, en tækið mun ekki fara í viðbragðsham fyrr en uppsetningu er lokið.
Þetta getur leitt til aukinnar orkunotkunar á meðan hugbúnaðaruppfærsla stendur yfir.