Að nota Live Playback (rauntíma spilun)
Það er eiginleiki sem þú getur notað til að vista tímabundið þá dagskrá sem þú ert að horfa á með USB HDD, svo þú getur spilað aftur þau atriði sem þú misstir af á meðan þú varst að horfa á sjónvarpið. Þessi aðgerð heimilar þér að halda áfram að horfa á frá þeim stað sem þú varst ef þú þarft að skreppa frá tímabundið.
- Setja USB HDD í USB tengið.
-
Ýttu á
hnappinn á fjarstýringunni og veldu Live Playback.
-
Staðfestingarskjárinn Live Playback birtist.
Ljúktu við stillingarnar og ýttu á Í LAGI hnappinn.
Ef aðeins einn USB lykill er tengdur er mögulegt að stillingaskjárinn birtist ekki og Live Playback gæti farið af stað. -
Á meðan þú horfir á beina útsendingu getur þú valið stað á framvindustikunni með bendlinum. Þú getur einnig ýtt á
/
hnappana á fjarstýringunni til að nota þennan eiginleika.
Veldu fyrrgreindan punkt en núverandi punkt á framvindustikunni.
Live Playback aðgerðina er aðeins hægt að nota fyrir útsendingarrásir sem þú horfir á í gegnum inntakstengi loftnetsins.
Þú getur ekki notað þennan valkost á meðan þú hlustar á útvarpsdagskrá.
Veldu tæki sem á að nota fyrir beina spilun þegar tvö eða fleiri USB HDD tæki eru tengd við sjónvarpið.
Þú getur ekki notað USB lykil. Tengið USB HDD með yfir 80 GB eða meira af heildargeymslu.
Ef það er ekki nóg rými á USB HDD tæki, gæti Live Playback ekki virkað almennilega. Til að nota Live Playback aðgerðina, þarft þú USB HDD sem hefur a.m.k. 2,3 GB.
Með Live Playback eiginleikanum getur þú spilað dagskrá aftur í allt að tvær klukkustundir eftir því hvað mikið gagnamagn er laust á USB HDD.
Tíminn getur verið mismunandi eftir svæðum.
Myndböndin sem vistuð eru í beinni spilun munu eyðast ef þú slekkur á sjónvarpinu án þess taka þau upp.
Skipting á milli stöðva meðan á Live Playback spilun stendur mun eyða gögnum fyrri stöðvar.
Þjónusta gæti ekki verið tiltæk fyrir sumar tegundir.