CI upplýsingar
Þú getur skoðað upplýsingar um tengt CI.
Almennt
Stöðvar
CI upplýsingar
Ef þú notar CI einingu eða CAM einingu,
- Þessi eiginleiki heimilar þér að horfa á dulkóðaða þjónustu (þjónusta sem greitt er fyrir).
- Ef þú fjarlægir CI eininguna, getur þú ekki horft á þjónustu sem þú greiðir fyrir.
- CI (Common Interface) eiginleikar gætu verið ófáanlegir eftir aðstæðum í útsendingarlandinu.
- Þegar einingin er sett í CI stæðið, hefur þú aðgang að valmynd einingarinnar.
- Til að kaupa einingu og snjallkort, hafðu samband við þjónustuveitanda.
- Þegar kveikt er á sjónvarpinu eftir að hafa sett í CI einingu, getur þú ekki haft myndband eða hljóð í ruglaðri útsendingu.
- Þegar þú notar CAM (Conditional Access Module), gættu þess að það uppfylli þær kröfur sem settar eru fram af DVB-CI eða CI plus.
- Óeðlileg virkni CAM (Conditional Access Module) gæti valdið slæmum myndgæðum.
- Ef sjónvarpið sýnir hvorki mynd eða hljóð þegar CI+ CAM er tengt við það, vinsamlegast hafðu samband við loftnets/kapal/gervihnatta þjónustufulltrúa. (Þjónusta gæti ekki verið tiltæk fyrir sumar tegundir.)
- Á meðan sjónvarpið styður áskriftarstöðvarnar sem byggja á evrópskum staðli DVB-CI+ þá gætu sumar stöðvar ekki verið tiltækar til áhorfs ef einhverjir útsendingaraðilar þeirra nota CAS kerfi háð einkaleyfi.
- Ef bæði minniskort og USB lykill eru tengd á sama tíma verður minniskortið notað.
- Ef USB lykill af annarri gerð er tengdur á sama tíma og annar USB lykill er sá lykill notaður sem var tengdur fyrst.