Að nota Tal til Texta
Þú getur sett inn texta í textabox með því að nota talgreiningaraðgerðina.
Veljið HljóðnemiHljóðnemi hnappinn á lyklaborðs skjánum til að skipta yfir í radd-inntaksham.
Þjónusta gæti ekki verið tiltæk fyrir sumar tegundir.
  1. Færðu bendil Magic Remote yfir í textaboxið til að opna sýndar lyklaborðið.

    Opna sýndar lyklaborðOpna sýndar lyklaborð

  2. Smelltu á HljóðnemiHljóðnemi hnappinn á sýndar lyklaborðinu.
  3. Eftir að upplýsingagluggi raddgreiningar opnast eins og sýnt er hér að neðan, talaðu hægt og skýrt í hljóðnemann á fjarstýringunni.

    Tal til Texta upplýsingaskjárTal til Texta upplýsingaskjár

    Tala í gegnum Magic RemoteTala í gegnum Magic Remote

  4. Ef að þú segir orð sem hafa önnur keimlík orð, getur þú séð lista af niðurstöðum sýnt fyrir neðan. Ef þú færð ekki þær niðurstöður sem þú vilt, ýttu á REYNA AFTUR og reyndu aftur. Veldu niðurstöðu og hún birtist í textaboxinu.

    Listi yfir niðurstöður Tal til TextaListi yfir niðurstöður Tal til Texta

Athugið þegar notað er Tal til Texta
Athugaðu nettenginguna áður en þú notar Tal til Texta eiginleikann.
Þú getur breytt tungumálinu í StillingarStillingar Tákn allra stillingaTákn allra stillinga Almennt Kerfi Tungumál (Language) Tungumál valmyndar (Menu Language). Til að víxla tímabundið yfir á annað tungumál talgreiningar, ýttu á RauðurRauður hnappinn í upplýsingaglugga raddgreiningar.
Þú getur eingöngu notað þennan eiginleika ef þú samþykkir skilmálana fyrir raddgreiningu.
Gæði Tal til Texta er háð sérkennum notanda (rödd, framburði, hljómfalli og talhraða) og umhverfinu (hávaða og hljóðstyrk sjónvarps).
Til að auka nákvæmni Tal til texta, þarft þú að tala hátt og skýrt í u.þ.b. 10 sm fjarlægð frá hljóðnemanum í Magic Remote.
Raddgreiningu er ekki hægt að nota þegar skrá þarf lykilorð og í vefslóðarreitnum á þínum Netvafri (undanskilur almenna leit).